top of page

 

LIVERPOOL

Liverpool F.C. var stofnað í kjölfar ágreinings milli Everton nefndarinnar og John Houlding eiganda Anfield. Eftir átta ár á vellinum, Everton flutti til Goodison Park árið 1892 og Houlding stofnaði Liverpool FC til að spila á Anfield. Upphaflega hét "Everton FC og Athletic Grounds Ltd" klúbburinn fékk nafnið Liverpool FC mars 1892 og fékk opinbera viðurkenningu þremur mánuðum síðar, eftir að knattspyrnusambandið neitaði að viðurkenna félagið sem Everton. Houlding fékk vin sinn John McKenna til að vera fyrsti stjóri Liverpool, hann réð strax 13 Skota til liðsins. Einn helsti leikmaðurinn i fyrsta liði LFC var Matt McQueen. Hann spilaði með liðinu í sjö ár og var einstaklega fjölhæfur. Hann spilaði allar stöður á vellinum, þar á meðal 40 leiki í marki.1923 varð Liverpool varð Englandsmestari í fyrsta sinn leiktíðina 1900-1901. Liverpool féll niður um deild 1904 en skaust strax aftur upp. Og varð svo Englandsmeistari í annað sinn 1905-1906. Skömmu eftir fyrri heimsstyrjöldina var annað blómatímabil fyrir Liverpool. Englandsmeistaratitillinn vannst tvö tímabil í röð, 1921-1922 og 1922-1923.

 

Nafnið

Flestir halda að nafn Liverpool sé dregið af líffærinu lifur. Það er líklega ekki rétt. Í eldgamalli heimild er talað um að á svæðinu búi fuglinn,,lever". Sá ugl varð tákn Liverpool og er í skjaldarmerki bæði borgarinnar og fótboltafélagsins. Ekki er alveg á hreinu hvaða fugl var upphaflega átt við, en líklega var það dílaskarfur. 

 

Búningar

Fyrstu fjögur árin spilaði Liverpool í bláum og hvítum búningui. Þá var skipt yfir í rauða treyju, hvítar buxur og rauða sokka. Sá búningur varð við lýði fram til 1964. Árið 1964 spilaði liverpool í fyrsta sinn í Evrópukeppni, það var í annari umferð sem Shankley ákvað að Liverpool myndi spila í alrauðum búningi.

 

Hillsborough

15.apríl 1989 átti liverpool að spila gegn Nottingham Forest í undanúrslitum enska bikarins (FA Cup). Leikurinn fór fram á hlutlausum hætti og varð Hillsborough Sheffield fyrir valinu. Mikill áhugi var fyrir leiknum og fjöldi stuðningsmanna Liverpool mætti til að horfa á hetjurnar sínar. Aðstæður á vellinum voru hins vegar slæmar. Í miklum troðningi gerði lögreglan illt verra með því að opna hlið sem fólk streymdi inn um. Mannfjöldinn varð alveg stjórnlaus og margir duttu og tróðust undir. Margir reyndu að sleppa með því að klifra yfir girðingar. Rétt eftir að leikurinn hófs brotnaði skilrúm milli svæða og mörg hundruð manns lentu í hræðilegum haug. Í þeim hryllingi sem átti sér stað dóu 96 manns oh hátt í 800 slösuðust, margir alvarlega. Margir þeirra sem dóu voru kornungir stuðningsmenn, sá yngsti 10 ára. Þetta var skelfiilegt áfall, en það gerði illt verra var að lögregluyfirvöld gerðu tilraun til að varpa sökinni á stuðningsmenn Liverpool. Slæm hegðun þeirra hefði átt þátt í hvernig fór. Eftir mikla baráttu tókst loks að úr því skorið með rannsóknarnefnd árið 2012 að það væri alrangt. Enn þann dag í dag neitar Liverpool að spila þann 15.apríl.

bottom of page